22.6.2010
Fóðurblöndunni hefur borist gjöf í tilefni 50 ára afmælisins. 
Kjartan Reynisson á Egilsstöðum færði okkur þessa líka flottu maísplöntu.
Kjartan átti og rak verslun og plöntusölu í verslunarhúsnæði
Fóðurblöndunnar á Egilsstöðum, hér á árum áður.
Gjöfin er táknræn. Maís, eins og við þekkjum, er aðal fóðurplanta manna og skepna um allan heim . Sjá meðfylgjandi myndir.
Þess má geta að maísinn dafnar vel , var u.þ.b 40 cm þegar hann kom í hús og fyrir nokkrum vikum og er núna ca. 2,4 m á hæð .
Fóðurblandan þakkar Kjartani kærlega fyrir þessa gjöf.

Hér til vinstri sést Elvar verslunasstjóri Fóðurblöndunnar á
Egilsstöðum taka við maísplöntunni góðu frá Kjartani.

Til baka