Áburðarverksmiðjan býður upp á mikið úrval einkorna áburðartegunda sem henta vel við íslenskar aðstæður. Efnasamsetning áburðartegundanna hefur verið þróuð í áratugi í samráði við ráðunauta og bændur með hliðsjón af niðurstöðum hey- og jarðvegsefnagreininga. Þess vegna finnur þú áreiðanlega tegund sem hentar við þínar aðstæður í fjölbreyttu úrvali áburðartegunda Áburðarverksmiðjunnar.
Einkorna áburður er áburður þar sem öll næringarefnin er að finna í einu áburðarkorni.
Græðir 8 er einkorna og er ætlaður á kalísnauð mýratún.Inniheldur Ca og Brennistein.

Eingildur köfnunarefnisáburður með 8% kalkinnihaldi.
Blandaður túnáburður. Hlutföll í þessari blöndu eru miðuð við meðalþörf af aðalnæringarefnunum þremur, köfnunarefni, fosfór og kalí.
Þrígildur köfnunarefnisríkur einkorna áburður, til sömu nota og Fjölgræðir 9 en með minna magn af fosfór og kali.

Blandaður áburður fyrir matjurtir. Inniheldur bór.
Blandaður áburður fyrir matjurtir. Inniheldur bór. Klórfrír