Fóðurblandan hf.undir merkjum Áburðarverksmiðjunnar, býður upp á mikið úrval fjölkorna áburðartegunda sem henta vel við íslenskar aðstæður. Efnasamsetning áburðartegundanna hefur verið þróuð í áratugi í samráði við ráðunauta og bændur með hliðsjón af niðurstöðum hey- og jarðvegsefnagreininga. Þess vegna finnur þú áreiðanlega tegund sem hentar við þínar aðstæður í fjölbreyttu úrvali áburðartegunda Áburðarverksmiðjunnar.
Fjölkorna áburður er áburður þar sem eitt til tvö næringarefni er að finna í einu korni sem eru þá mismunandi að gerð og lögun.

Blandaður tvígildur áburður með köfnunarefni og fosfór og brennistein einnig Ca ríkur.

Blandaður, tvígildur áburður, með köfnunarefni og fosfór. Inniheldur kalk og brennistein.

Blandaður áburður á nýrækt, grænfóður og korn.

Blandaður túnáburður. Hlutföll í þessari blöndu eru miðuð við meðalþörf af aðalnæringarefnunum þremur, köfnunarefni, fosfór og kalí.

Blandaður túnáburður. Hlutföll aðalnæringarefnanna liggja nokkuð nálægt meðalnotkun.

Blandaður túnáburður. Köfnunarefnisríkur með lágu kalí- og fosfórinnihaldi.