Sauðfjárfóður

Fóðurbætir fyrir sauðfé

Milljónablandan

Milljónablandan hentar sauðfé með beit, á fengitíma og eftir burð. Blandan er sett í gegnum kögglunarvél til að tryggja rétta hitameðhöndlun en vegna þess hve hlutfall fiskimjöls er hátt kögglast í raun aðeins lítill hluti blöndunnar.

Um nafnið: Á sínum tíma vorum við beðnir um að framleiða fóður sem gæti hentað fyrir sauðfé í Skaftártungum. Fóðurfræðingur FB brást skjótt við og á markaðinn kom fóður fyrir sauðfé á landsvísu. Þegar bændur voru síðar spurðir um hvernig fóðrið hafði reynst voru viðbrögðin þau að þessi blanda væri alveg milljón. Út frá því kom nafnið Milljónablandan.

 


Flýtileiðir

Skipta um leturstærð