Hestafóður

Múslífóður fyrir hesta

Bjóðum upp á tvær tegundir af múslífóðri fyrir hesta. Góðir skammtar af öllum helstu næringarefnum í þessum tvemur tegundum, Classic–Múslí (20kg)og F-Múslí (25 kg). Kynnið ykkur efnasamsetninguna hér fyrir neðan.


F-Múslí

F-múslí er múslífóður byggt á gufuvölsuðum maís, hveiti og byggi. Einkum ætlað hestum í meðal stífri þjálfun þar sem hlutfall gróffóðurs er hátt.
Lystugt fóður með lágu próteininnihaldi.


Efnainnihald
 Orka, meltanleg 10,80 MJ/kg   Fosfór 0,35%
 Prótein 9,50%  Kalsíum 0,90%
 Melt. prótein 5,60%  Natríum 0,78%
 Aska 7,00%  Magnesíum 0,15%
 Fita 2,50%  
 Tréni 7,90%  

Classic-Múslí

Classic Múslí er múslífóður byggt á gufuvölsuðum maís, hveiti og byggi. Einkum ætlað hestum í meðal til stífri þjálfun.


Efnainnihald
 Orka, meltanleg 11,30 MJ/kg   Fosfór 0,55%
 Prótein 9,00%  Kalsíum 1,50%
 Melt. prótein 7,00%  Natríum 0,60%
 Aska 9,00%  Magnesíum 0,25%
 Fita 3,50%  
 Tréni 5,00%  

Minnum einnig á hestanammið í 1 kg pakkningum.

Fæst í öllum verslunum okkar.


Þandir hestakögglar

Þessi aðferð er notuð við framleiðslu á fóðri fyrir smágrísi og fiska sem ekki eru með jafn vel þróuð meltingarfæri og önnur dýr. Áhugi vaknaði erlendis á þöndum kögglum fyrir hross þegar í ljós kom að meltingartruflunum fækkaði mjög hjá hrossum sem fengu engöngu þanda köggla.

Kögglarnir eru stærri (12mm) en hefðbundnir kögglar, ryklausir og mjög lystugir fyrir hestinn.

Efnainnihaldið í kögglunum er aðlagað íslenskum aðstæðum. Ef gefið er um 1kg á dag með heyi á það að fullnægja þörfum hestsins fyrir öllum vítamínum og steinefnum. Einnig hafa menn séð að með því að gefa bíotín batnar hóf og hárvöxtur til muna. Ekki er þörf á að gefa auka vítamín og steinefnalöndur eða bíotín ef gefið er 1kg á dag af kögglunum.

Þandir hestakögglar eru framleiddir í 3 gerðum, Hnokki, Þokki og Þjálfi. Þeir eru seldir í 20 kg sekkjum hjá Fóðurblöndunni hf.


Hnokki

Hnokki eru þandir orkuríkir hestakögglar með háu fituinnihaldi en eru próteinsnauðir. Hnokki hentar vel hestum sem eru holdrírir og þarf að bata. Kögglarnir eru E-vítamín og bíótínríkir. Þeir eru einnig ryklausir.

Efnainnihald
 FEm 114/100 kg  Fosfór 0,8%
 Prótein 8,0%  Kalsíum 1,0%
 Melt.prótein 5,0%  Natríum 0,4%
 Aska 6,0%  
 Fita 12,0%  
 Tréni 6,5%  

Þokki

Hestakögglarnir eru framleiddir með sömu aðferð og t.d. morgunkorn. Við það eykst meltanleikinn og kögglarnir verða mjög lystugir. Einnig eru þeir ryklausir.

Efnainnihald

 FEm 98/100 kg  Fosfór 0,8%
 Prótein 11,0%  Kalsíum 1,0%
 Melt.prótein 8,8%  Natríum 0,4%
 Aska 8,0%  
 Fita 5,0%  
 Tréni 8,5%  


Þjálfi

Þjálfi eru alhliða hestakögglar og eru mjög lystugir.

Efnainnihald

 FEm 90/100 kg  Fosfór 0,6%
 Prótein 10,0%  Kalsíum 1,0%
 Melt. prótein 8,8%  Natríum 0,4%
 Aska 7,0%  
 Fita 3,0%  
 Tréni 5,0%  
 

 


Flýtileiðir

Skipta um leturstærð