Svínafóður

Unggrísakögglar

Þanið heilfóður fyrir fráfærugrísi. Spenagrísafóður er gefið grísum undir gyltunni og sem ætlað er að venja undan 3 til 4 vikna eða við 5 til 6 kg þunga. Gefið þar til 10 dðgum eftir fráfærur eða um 3 kg af fóðri á grís. Þá er skipt yfir í unggrísaköggla (eða þegar grísirnir eru um 8 kg þungir). Við 12 til 15 kg þunga er skipt yfir í smágrísaköggla.

Smágrísakögglar

Þanið heilfóður fyrir smágrísi. Smágrísakögglar eru ætlaðir grísum frá 12 til 25 kg þunga (4 til 12 vikna).


Grísakögglar

Grísakögglar 2

Heilfóður fyrir grísi frá 25 til 50 kg. Grísakögglar 2 er eldissvínafóður fyrir svín 25 til 50 kg þung.

Grísakögglar 3

Heilfóður fyrir grísi frá 50 kg og til slátrunar. Eldiskögglar fyrir grísi án fiskimjöls frá 50 kl þunga til slátrunar.


Fóður ætlað gyltum

Mjólkurgyltukögglar

Heilfóður fyrir gyltur á mjólkurskeiði. Gylltukögglar eru ætlaðir gyltum sem eru með grísum.

Geldgyltukögglar

Heilfóður fyrir geldgyltur.  Ætlaðir fyrir geldgyltur þar til 3 til 5 dögum fyrir got en þá er skipt yfir í venjulega gyltuköggla. Gefið er 2 til 2,4 FE/dag allt eftir ástandi og holdafari.

FE 100/100 kg

 


Flýtileiðir

Skipta um leturstærð