Í héraði hjá þér
Verslanir Fóðurblöndunnar og samstarfsaðila eru staðsettar nálægt helstu landbúnaðarhéruðum landsins.
Hlutverk verslunarsviðs Fóðurblöndunnar er að reynast bændum fyrsti kostur við val á rekstrarvörum til síns búskapar. Auk úrvals af fóðurtegundum úr eigin framleiðslu Fóðurblöndunnar hf. er boðið upp á saltsteina, bætiefni, kálfamjólk, vítamín og steinefni, svo fátt eitt sé nefnt. Þá má í vöruúrvalinu finna hin ýmsu sótthreinsiefni, verkfæri og hlífðarfatnað til hins daglega rekstrar búsins.
Boðið er upp á mikið úrval af sáðvöru; grasfræ, grænfóðurfræ og byggyrki til ýmist þroska eða í grænfóður.
Í verslunum FB er mikið úrval af girðingarefni, jafnt í hefðbundnar girðingar sem og rafgirðingar. Má þar nefna net, staura, gaddavír, þanvír og hliðgrindur – boðið á verði sem þolir samanburð.
Í verslunum FB má einnig finna gott úrval af heyrúlluplasti. Leitast hefur verið við að bjóða upp á tegundir af heyrúlluplasti þar sem gott verð og gæði fara saman.
FB Verslun Egilstöðum
Miðvangi 31
Sími: 570 9860
Verslunarstjóri: Vignir Elvar Vignisson,
elvar@fodur.is
FB Verslun Hvolsvelli
Hlíðarvegur 2-4
Sími: 570-9850
Verslunarstjóri: Magnús Bjarki Jónsson
maggi@fodur.is
FB Verslun Selfossi
Austurvegur 69
Sími: 570-9840
Verslunarstjóri: Guðjón Kjartansson,
gudjon@fodur.is
Opnunartími verslana er alla virka daga frá kl. 10:00 til 18:00