Verksmiðja Fóðurblöndunnar er staðsett við Korngarða í Sundahöfn. Verksmiðjan var reist árið 1986.
Uppfyllum kröfur nútímans
Verksmiðja Fóðurblöndunnar uppfyllir allar þær nýjustu kröfur sem fóðurframleiðsla þarf í dag til að geta starfað og er hún fullkomnlega sambærileg evrópskum fóðurverksmiðjum sem uppfylla ströngustu reglugerðir. Miklar kröfur eru gerðar til fóðurframleiðenda hér á landi og stenst Fóðurblandan allar þær reglugerðir og gæðakröfur sem um fóðurframleiðslu gilda.
Endurnýjun og afkastageta
Nýlega er búið er að endurnýja alla framleiðsluþættina í verksmiðju Fóðurblöndunnar og auka framleiðslugetuna. Í grófum dráttum er framleiðsluferillinn eftirfarandi: mölun, blöndun hitameðhöndlun (til þess að dauðhreinsa hráefnin) þjöppun sem er gerð með þenjaratækni (Expander),kögglun og kæling. Það nýjasta í ferlinum er notkun á þjöppun en við það er hægt að fá aukna hörku sem minnkar ryk og minni líkur eru á að kögglar mölni við meðhöndlun sem verður þegar verið er að setja köggla í síló, lestun í tankbíl og þaðan í síló viðskiptavinarins. Nýr forblandari var tekin í notkun nýverið og eykur það gæði og nákvæmni blöndunnar.
Á undanförnum árum hefur áhersla verið lögð á að stækka geyma fyrir fullunna vöru og auka hagkvæmni við framleiðsluna. Afkastageta verksmiðjunnar er 12 tonn á klukkustund og eru framleiddar um 65 mismunandi blöndur af fóðri.
Fóðurblandan í 50 ár
Fóðurblandan var stofnuð 8. Apríl 1960 með það fyrir augum að bjóða betri og hagkvæmari fóðurlausnir en þá stóðu íslenskum bændum til boða. Á upphafsárunum var framleiðslan einföld í sniðum, blöndun á korntegundum og íblöndun bætiefna, en árið 1986 flutti starfsemin í nýja og fullkomna fóðurverksmiðju við Korngarða í Sundahöfn. Síðan þá hefur Fóðurblandan verið leiðandi í fóðurframleiðslu á Íslandi og fylgt þeirri tækniþróun sem hefur átt sér stað í framleiðslugreininni.