Hey Bóndi 2015
Laugardaginn 14. nóvember n.k verður haldin landbúnaðarsýning í Félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli frá kl. 10:00 – 17:00.
Innlendir og erlendir aðilar verða með fyrirlestra og kynningar um efni tengt landbúnaði.
Alls verða 11 fyrirlestrar með ýmsum fróðleik tengdum landbúnaði.
Meðal efnis
- Hönnun velferðarrýmis í fjósum Snorri Sigurðsson, Seges
- DeLaval: Sjálvirkt mat á holdafari: Hólmgeir Karlsson, Bústólpi
- Áburður & sáðvörur: Pétur Pétursson, Fóðurblandan
- Fjármögnun í landbúnaði: Róbert Sverrisson, Arion Banki
- Gerð fasts vinnuskipulags við mjaltir og mjaltakerfi: Snorri Sigurðsson, Seges
- Fóðrun gæludýra: Dr. Jens Deleuran, Arovit
- Hvað getum við lært af þróunarlöndum: Snorri Sigurðsson, Seges
- Jörð.is - hvernig nýtum við forritið: Borgar Páll Bergsson, RML
- Fóðrun nautgripa: Erlendur Jóhannsson, Fóðurblandan
- Dönsk ráðgjafarþjónusta, hvað stendur þeim til boða: Snorri Sigurðsson, Seges
- Ráðgjöf í sauðfjárbúskap: Fanney Ólöf Lárusdóttir, RML
Kynnt verður ný sýnatökuvél sem tekur prufur af heyi, korni og fóðri, fjöldi tilboða á landbúnaðarvörum á meðan sýningu stendur og í boði verður að reynsluaka nýjum bifreiðum og traktorum.
Blöðrur, smakk og skemmtilegheit fyrir alla.
Hlökkum til að sjá sem flesta á sýningunni Hey bóndi! 2015.