8% lækkun á áburðarverði milli ára
Verðskrá Fóðurblöndunnar/Áburðarverksmiðjunnar er komin út. Verðskráin gildir til 31. janúar 2016 og er háð breytingum á gengi. Eins og áður eru í boði hagstæðir greiðslusamningar. Þá eru í boði 8% staðgreiðsluafsláttur. Áburðarverðskráin lækkar um 8% milli ára sem skýrist meðal annars á breytingum á gengi og hagstæðari samningum milli ára.
Fóðurblandan býður upp á fjölbreytt úrval af tegundum sem hannaðar voru með íslenskar aðstæður í huga. Fyrirtækið býður upp á bæði einkorna og fjölkorna áburð, fimm einkorna tegundir og átta fjölkorna tegundir.
Vöruskrá Fóðurblöndunnar byggir á formúlum Áburðarverksmiðjunnar. Áburðarformúlurnar voru sérsniðnar að þörfum landbúnaðar á Íslandi. Efnainnihald áburðarins byggir á rannsóknum sem gerðar voru á íslenskum jarðvegi og mælingum heysýna. Þegar Áburðarverksmiðjan hóf að framleiða NPK áburðartegundir voru sérfræðingar hér á landi fengnir sem ráðgjafar til að hanna áburð sem hentaði okkar aðstæðum. Sérfræðingar í jarðrækt og áburðarfræðum hér á landi komu að gerð þeirra áburðategunda sem fyrirtækið býður uppá.
Einkenni NPK tegunda Áburðarverksmiðjunnar eru hátt gildi fosfórs og tiltölulega lágt gildi á kalí. Einkenni fjölkorna tegunda fyrirtækisins er hár vatnsleysanleiki. Hár vatnsleysanleiki er sérstaklega mikilvægur í köldu loftslagi og þar sem vaxtartíminn er stuttur. Hér á landi er búið við kalt loftslag og stuttan vaxtartíma.
Hagstæðir flutningur í boði
Boðið er upp á flutningstilboð, 600 kr/sekk til þeirra sem panta fyrir 31. janúar næstkomandi. Flutningstilboðið er þó háð því að pantaðir séu 10 sekkir eða meira.
Vöru og verðskrá 2016
Smelltu hér til að nálgast verðskrá áburðar 2016
Smelltu hér til að nálgast vöruskrá áburðar 2016
Fóðurblandan hvetur viðskiptavini sína til þess að ganga frá pöntunum sem fyrst, með því að hafa samband við skrifstofu fyrirtækisins í síma 570-9800 eða einhvern af sölumönnum þess eða söluaðilum. Verðskrá er að finna á www.fodur.is
Sölu- og samstarfsaðilar:
Fóðurblandan Reykjavík 570 9800
Bústólpi Akureyri 460 3350
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík 455 3100
Búrekstardeild KB Borgarnesi 430 5500
KVH Hvammstanga 455 2325
Verslunin Eyri Sauðárkróki 455 4626