Fóðurblandan og samstarfsaðilar stórlækka verð á Græði áburði - 25% lækkun.
- Minni mengun með áburði án kadmium -
Vegna hagstæðrar verðþróunar á áburðarhráefnum og hagstæðrar þróunar í gengismálum lækkar verð á Græði áburði um 25% frá síðasta ári.
Í fyrra lækkaði verðskráin um meira en 12%. Stórfelldar lækkanir síðustu tveggja ára eru sannarlega góð tíðindi fyrir bændur.
Sérhannaður og fosfórríkur áburður með háan vatnsleysanleika
Græðir áburður er hannaður fyrir íslenskar aðstæður. Áburðurinn er fosfórríkur og með háan vatnsleysanleika sem hentar vel aðstæðum á Íslandi þar sem er kalt loftslag, stuttur vaxtatími og sérstök jarðvegsgerð krefst hærra fosfórsinnihalds.
Kalkríkar tegundir
Köfnunarefnið í Græði áburði er kalkríkara en hjá öðrum íslenskum innflytjendum áburðar. Köfnunarefnisáburðurinn inniheldur 8% kalsium (kalk) en það er mikilvægt til þess að vinna gegn súrnun jarðvegs en súr jarðvegur eykur hættu á kalskemmdum. Rétt sýrustig jarðvegs tryggir bæði meiri uppskeru og betri heygæði.
Áburður án kadmium
Græðir áburður inniheldur ekki þungmálma eins og kadmium. Fosfórinn í tegundum Græðis er upprunninn frá Kola-skaga. Framleiðendur í Evrópu nota jafnan ódýran fosfór frá Norður Afríku sem inniheldur mikið af kadmium.
Smellið hér til að skoða áburðarverðskrá Fóðurblöndunnar 2017.