Skilmálar fyrir frían flutning
- Viðskiptavinir verða að panta í gegnum netverslun til að fá frían flutning.
- Frír flutningur er í boði ef pantað er fyrir meira en 30.000 kr.
- Frír flutningur er í boði fyrir póstnúmer 101-371 og 800-881. Utan þeirra póstnúmera gildir gjaldskrá viðkomandi flutningsaðila.
- Áburð í stórsekkjum verður ekki hægt að panta í gegnum netverslun á þessu ári.
- Óbreytt fyrirkomulag er á flutningi ef viðkomandi pantar fyrir minna en 30.000 kr.
Ef þú vilt fá nánari upplýsingar um flutning á önnur svæði, vinsamlegast hafðu samband við okkur á fodur@fodur.is
Ef þig vantar aðstoð við að panta í gegnum vefverslun, vinsamlega hafðu þá samband í síma 570 9800.
Almennir skilmálar fyrir vefverslun
- Seldar vörur eru afgreiddar úr vöruafgreiðslu Fóðurblöndunnar næsta virkan dag eftir pöntun, með þeim fyrirvara þó að þær séu til á lager.
- Séu pantaðar vörur uppseldar tímabundið mun þjónustufulltrúi hafa samband við fyrsta tækifæri með tölvupósti.
- Sendingar innanlands greiðast við móttöku samkvæmt verðskrá Póstsins ef eingöngu um smávöru er að ræða í sendingunni, en samkvæmt verðskrá vöruflutningafyrirtækis ef um stærri hluti er að ræða.
- Sendingar sem viðskiptavinur sækir sjálfur eru afhentar í verslunum Fóðurblöndunnar gegn framvísun persónuskilríkja eða skriflegu umboði kaupanda.
- Póstsendingar eru afgreiddar af lager Fóðurblöndunnar og ættu að jafnaði að berast á áfangastað 2-3 virkum dögum eftir pöntun.
- Greiðslur með kreditkortum eru alfarið meðhöndlaðar af vefþjónum Valitor, greiðslumiðlun Visa og eru engar kortaupplýsingar vistaðar á vefþjónum Fóðurblöndunnar.
- Öll verð eru birt með fyrirvara um villur og myndbrengl.
- Öll verð eru með virðisaukaskatti.
- Varðandi fóður,fræ og áburð þá leyfir gæðakerfi Fóðurblöndunar sem og reglur Matvælastofnunnar ekki vöruskil ef viðkomandi vörur hafa farið heim á bæ / vinnslustöð. Um aðrar vörur sem ekki heyra undir þessar reglur, þá gilda almenn neytendalög um vöruskil.