Lifeline Lamb & Ewe steinefnastampurinn er einstakur að sinni gerð þar sem samsetningu hans er ætlað að tryggja sem best heilbrigði ófæddra lamba og lambánna um leið.
* Byggir upp ónæmiskerfi lambanna
* Aukin gæði broddmjólkur
* Eykur líkur á auðveldari burði, líflegri lömbum og minni lambadauða
* Óerfðabreytt fóður
Inniheldur “Mannan” fjölsykru sem eflir ónæmisvarnir og eykur magn mótefna í broddmjólk. Eykur einnig næringarupptöku lambanna.
Hátt innihald af Seleni og E-vitamíni styrkir lömbin og dregur einnig úr líkum á erfiðleikum við burð. Auk þessa inniheldur Lifeline öll þau steinefni og snefilefni sem nauðsynleg eru fyrir heilbrigði lamba og lambánna.
22,5 kg