Kalkkorn er kornað kalk og þægilegt til dreifingar á grasflatir. Kalkið vinnur gegn súrnun jarðvegs og auðveldar plöntum upptöku annarra efna, auk þess heldur það mosa í skefjum.
- Athugið að ekki ber að kalka kartöflugarða vegna kláðahættu, nema um mjög súran jarðveg sé að ræða.
- Einnig þrífast nokkrar tegundir skrautjurta best í súrum jarðvegi.
Efnainnihald:
Kalsíum ( Ca) |
35% |
Magnesíum (Mg) |
1,4% |